golfkennsla

Golfnámskeið
Golfbækur
Golfferðir
Golf fyrir fjölskylduna
Golfmót
Greinar
Tenglar
Um skólann
Hafið samband
Forsíða
Golfleikjaskólinn

Ferðasaga frá Himmerland Golf & Country Club 9. – 15. júní 2007



Ég er nýkomin heim úr ánægjulegri ferð til Himmerland Golf & Country Club í Danmörku, með hópi kvenna á vegum Golfleikjaskólans, þar sem við dvöldum í viku, í aldeilis frábæru yfirlæti með mjög færum golfkennurum. Ég punktaði hjá mér nokkur atriði sem mig langar til að deila með öðrum.

Flogið var til Billund og síðan ekið þaðan í rútu í áfangastað. Landslagið á Jótlandi þarf nú ekki að kynna fyrir íslendingum, en að aka þessa leið , í yndislegu veðri, sól og sumaryl, og sjá hvað allt er gróið og ræktunin skipulögð, er manni minnisstætt.

Eins og nafnið bendir til var ferðinni heitið í skóla til þess að auka við kunnáttu sína í þessari frábæru íþrótt sem golfið er. Á námskeiðinu sem þarna fór fram var stíf dagskrá hvern dag, en einhvern veginn er það nú þannig að þegar að tekur í við að leysa verkefni dagsins verður ánægjan margföld.

Kennslan endaði á golfmóti, sem allir tóku þátt í, ræst var út af öllum teigum og að lokinni keppni var slegið upp veislu þar sem verðlaunaafhending fór fram.

Þessi tími var yndislegur, hópurinn allur glaðvær og samstilltur, frábærar konur víða að af landinu og allar ljómuðum yfir því sem fram var borið og raunar aðstöðu allri.

Morgunverður var útfærður á marga vegu, hádegisverður var ávextir, grænmeti og grjón með því sem við á, hrein skrautsýning hvern dag. Kl. 19:00 hittust allir nýstroknir og hressir eftir erfiði dagsins, þar sem hver og einn gat valið léttar veigar og síðan var kvöldverður framreiddur. Honum þarf var að lýsa, en sannarlega fóru kokkarnir á flug hvern einasta dag og var engu líkara að keppst væri um að hver dagur tæki þeim fyrri fram.

Íslenski hópurinn var rúmlega 30 konur en frá hinum norðurlöndunum voru þær um 70, svo alls voru þarna um 100 konur, sem mættar voru til að bæta sína kunnáttu í golfi.

Mér fannst athyglisvert hversu góð skipulagningin á svæðinu var, og hvað öll umferð á staðnum rann vel. Aðkoman að húsakostinum var ákaflega rúmgóð, gríðarlega stór stétt sem tjaldað var yfir og nóg pláss og fólk gat öruggt skilið eftir sína kerrur þarna því allir kunnu að umgangast slíkt. Þarna voru borð, stólar og bekkir svo hægt var setjast niður og rabba við gest og gangandi, bera saman bækur sínar og fá sér hressingu. Handan við húsið var annarskonar útfærsla og þar var hægt að panta sér smárétti og neyta utandyra, um leið og maður naut útsýnisins yfir hið glæsilega golfvallarsvæði.

Tíminn flaug, eins og jafnan þegar gaman er og skyndilega var farið að huga að heimferð, tína saman föggur sínar, þar sem óðum styttist í kveðjustund.

Heimferðin gekk ljómandi vel, farið með kvöldflugi frá Kaupmannahöfn.

Allir vita hvað skipulagning og stjórnun hefur að segja í svona hópferð. Þessi ferð var á vegum Golfleikjaskólans undirstjórn Önnu Díu og dóttir hennar Tinnu Ósk og leystu þær verkefnið frábærlega vel af hendi með sinni ljúfu framkomu og kurteisi.

Kærar þakkir
Ingibjörg Pétursdóttir GKG

 
Golfleikjaskólinn
Sími: 691 5508
golf@golfleikjaskolinn.is
www.golfleikjaskolinn.is
golf