golfkennsla

Golfnámskeið
Golfbækur
Golfferðir
Golf fyrir fjölskylduna
Golfmót
Greinar
Tenglar
Um skólann
Hafið samband
Forsíða
Golfleikjaskólinn

Ladies Golf Week 2005 - ferðasaga




12. júní s.l. lögðu af stað í 7 daga golfferð 36 konur víðsvegar af landinu.

Ferðinni var heitið til Himmarland í Danmörku í golfskóla/viku fyrir konur sem kallaður er Ladies Golf Week. Þetta er árlegur viðburður hjá Himmerland Golf&Countryclub þar sem 5 frábærir kvengolfkennarar sinna golfkennslunni með mikilli fjölbreytni.

Í ár tóku u.þ.b. 90 konur frá nokkrum löndum þátt í kvennavikunni og áttu saman ánægjulega golfviku með því að auka færnina í golfi, spila golf ásamt því að skemmta sér konunglega, borða góðan mat og hvíla sig frá dagalegu amstri hér heima. Sem sagt lúxusvika fyrir kvenkylfinga

Himmerland Golf&Countryclub býður upp á frábæra aðstöðu fyrir alla kylfinga hvort sem þeir eru atvinnumenn eða nýliðar. Eitt æfingasvæðið er kennt við Tomas Björn sem er vel þekktur kylfingur í heiminum og einnig er PGA-golfvöllur en flestar okkar höfðu útsýni frá hótelherberginu yfir 18 braut og flöt á þeim velli.

Aðstaðan var öll hin besta alveg sama hvert á er litið. Golfkennslan einstök, vellirnir,maturinn,gistiaðstaðan sem bæði var á nýlegu hóteli eða í litlum húsum við golfvöllinn. Nudd og snyrtistofa sem var vel sótt af íslensku konunum eftir stangar æfingar.

Allt þetta hjálpaði til við að gera þessa ferð svo ánægjulega að flestar vilja fara aftur að ári.

Til þess að gera lesendum smá grein fyrir dagskrá vikunnar verður hér líst 16. júní.

Dagurinn hóst með glæsilegau morgunverðarhlaðborði og síðan tóku strangar æfingar við 08.30 – 17.30: golfkennsla og spilaðar minnst 9 holur eða fleiri eftir því hvað hver vildi.

Helmingur þátttakenda spilaði, hinar fóra í golfkennslu þar sem flestir þættir golfsins voru teknir rækilega í gegn. Og síðan víxlað eftir hádegi.

Hollur og góður hádegisverður borinn fram milli kl. 12-13 og síðan haldið áfram með dagskrána.

Eftir golfið var gaman að setjast niður á Green-bar og reikna út skor dagsins og fá sér hressingu/ fara í sund, sauna eða láta nudda úr sér þreytuna.

Þegar kom að kvöldverði var þjónað til borðs og golfkennararnir gerðu upp daginnog afhentu allskonar verðlaun og útskýrðu dagskrá næsta dags.

Eftir frábæran kvöldverð og verðlaunaafhendingu var brugðið á leik og að þessu sinni var Karaoke set í gang þar sem öllum stóð til boða að syngja og dansa og var tjúttað langt fram á kvöld.

Á hverju kvöldi fóru þátttakendur vel þreyttir og glaðir í rúmið og sváfu vel fram á næsta morgun.

Það voru golfkennararnir sem sáu um alla dagskrá vikunnar hvort sem það var á daginn eða kvöldin.

Hægt er að sjá dagskrá vikunnar á síðu Golfleikjaskólans www.golfleikjaskolinn.is/golf-ferdir.html


Með golfkveðju,
Anna Día


 
Golfleikjaskólinn
Sími: 691 5508
golf@golfleikjaskolinn.is
www.golfleikjaskolinn.is
golf